Niðjatal Einars Ásgrímssonar og kvenna hans

Óskar Garibaldason

Niðjatal Óskars Garibaldasonar og Anneyjar Ólfjörð Jónsdóttur
Siglufirði

oskargaribalda.jpg

Þegar hann var um tvítugt var hann að vinna á síldarplani og þar var einnig ung glæsileg og harðdugleg stúlka frá Ólafsfirði við söltun. Góð kynni tókust með þeim og ferðir voru farnar inn í Ólafsfjörð til frekari kynna. Stúlkan hét Anney Ólfjörð Jónsdóttir, f. 20. júní 1912, og var dóttir hjónanna Jóns Hanssonar sjómanns og Svövu Guðvarðardóttur. Óskar og Anney gengu í hjónaband fyrsta vetrardag 1930. Þau settust að á Siglufirði og varð þeim sex barna auðið. Þau eru Hörður Sævar íþróttakennari, f. 1932, Erla hjúkrunarfræðingur, f. 1936, Hlynur Sævar tónlistarkennari, f. 1942, Hallvarður Sævar málarameistari, f. 1944, Hólmgeir Sævar húsasmíðameistari, f. 1945, og Sigurður Helgi Sævar, f. 1950, en hann dó 18. febrúar 1961, efnilegur drengur og upprennandi tónlistarmaður. Óskar og Anney voru mjög samhent í uppeldi barna sinna og hvetjandi til náms og þroska. Óskar stundaði allskonar vinnu sem til féll. Hann var eftirsóttur dixilmaður á síldarplönum en svo voru þeir menn kallaðir sem settu lok á fullar síldartunnur og lokuðu síðan með gjörðum. Til þessa verks voru notaðir dixlar og drifholt og þaðan er nafngiftin dregin. Hann var verkstjóri á síldarplani. Um tíma átti hann vörubíl og stundaði vörubílaakstur. Hann vann einnig á trésmíðaverkstæði Kristjáns Sigtryggssonar um hríð. Haust eitt fór hann með sænskum vinum sínum á síldveiðiskipi til Svíþjóðar og var vetrarlangt og var Hörður sonur hans með honum í þeirri ferð. Sumarið eftir voru þeir með Svíunum á reknetaveiðum fyrir Norðurlandi.  Óskar var þeirrar gerðar að hann mátti aldrei aumt sjá, þá var hann kominn til að aðstoða. Lítil dæmisaga um Óskar: Rottur komust inn í kjallara húss hans og setti hann upp gildru til að ná þeim. Jú, jú, rottur komu í gildruna. Hann gat ekki hugsað sér að drepa þær og labbaði með gildruna með rottunum í árla morguns fyrir fótaferð manna niður í fjöru hjá flóðvarnargarðinum og sleppti rottunum úr gildrunni þar.  Ungur tók hann virkan þátt í verkalýðshreyfingunni til að bæta kjör verkafólks. Hann var um árabil í stjórn og síðar formaður og starfsmaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði.  Einn er sá þáttur sem ekki skal gleymast í minningu Óskars og Anneyjar en það er tónlistarþátturinn. Óskar spilaði á sög og mandólín og snerti einnig á fiðlu en Anney spilaði á orgel og hafði fína altrödd. Þau voru bráð-músikölsk. Þau fundu til þess að börn og unglingar á Siglufirði fengu ekki nægilega tónlistaruppfræðslu. Þau tóku sig til með vinum sínum Kristjáni Sigtryggssyni og Hafliða Guðmundssyni og fleirum og stofnuðu Tónskóla Siglufjarðar. Eldhuginn Sigursveinn D. Kristinsson tónskáld var fenginn til að veita skólanum forstöðu. Anney heimsótti alla síldarsaltendur og önnur fyrirtæki á Siglufirði og bað um framlög til skólans. Ég hygg að enginn hafi neitað henni um framlag, svo gott var þetta mál í kynningu Anneyjar. Verkalýðsfélagið Vaka studdi skólann af myndarskap. Óskar aflaði hljóðfæra fyrir skólann, m.a. frá Þýskalandi og flutti inn sjálfur. Skólinn var gríðarleg upplyfting fyrir menningarlífið á Siglufirði og gaf börnum og ungu fólki tækifæri til ríkara menningarlífs.  Anney lést 28. nóvember 1975. Eftir lát hennar bjó Óskar einn í húsi sínu. Hann kynntist svæðanuddi í Þýskalandi á fullorðinsaldri og hóf þá að kynna sér allt um svæðanudd. Hann fékk sér nuddbekk og þegar fólk frétti það þá leitaði það til hans um nuddmeðferð. Margur fór af fundi hans með betri líðan.  Óskar lést daginn eftir 76 ára afmælið sitt 2. ágúst 1984.                             (Mbl 1. Ágúst 2008, Jón Hallsson)

Forsíða (frontpage) | Saga | Niðjatal (pedigree, stammbaum) | Ungar (newborn, neugeborene) | Framætt (Ahnen, ancestors) | Kristbjörg Jónsdóttir | Margrét Jónsdóttir | Sigurbjörg Magnúsdóttir | Sigurbjörg Jónsdóttir | Myndir (photos, bilder) | Heimasíður (Links) | Afmælisdagar (birthdays, geburtstags) | Contact | From Adam and Eve | Frosti | Kristbjörg Einarsdóttir
next.gif

Til baka í Garibaldaætt

 
         Óskar Garibaldason, f. 1. ágúst 1908, d. 2. ágúst 1984, Verkalýðsforingi Siglufirði.
         - K.  25. okt. 1930, Anney Ólfjörð Jónsdóttir, f. 20. júní 1912, d. 28. nóv. 1975, Siglufirði.
         For.: Jón Árni Hansson, f. 19. júlí 1891, d. 14. júlí 1947, Sjómaður Garði Ólafsfirði og Svava Guðvarðardóttir, f. 2. sept. 1884, d. 12. júlí 1964, Ólafsfirði.
         Börn þeirra:
             a) Hörður Sævar, f. 4. júlí 1932,
             b) Erla, f. 5. maí 1936,
             c) Hlynur Sævar, f. 2. mars 1942,
             d) Hallvarður Sævar, f. 24. nóv. 1944,
             e) Hólmgeir Sævar, f. 26. des. 1945,
             f) Sigurður Helgi, f. 27. febr. 1950.
        
    a    Hörður Sævar Óskarsson, f. 4. júlí 1932, d. 14. jan. 2019, Íþróttakennari Selfossi og Reykjavík.
         - K.  2. ágúst 1955, Dagný Jónsdóttir, f. 20. jan. 1933, d. 17. júlí 2000, Selfossi og Reykjavík.
         For.: Jón Karlsson, f. 9. apríl 1913, d. 30. okt. 1989, Bóndi Múla Álftarfirði. og Sigurborg Björnsdóttir, f. 1. des. 1912, d. 21. nóv. 1961, Múla.
         Börn þeirra:
             a) Ómar Sævar, f. 1. júní 1955,
             b) Harpa Sjöfn, f. 16. maí 1956,
             c) Anna Sigurborg, f. 16. júní 1959,
             d) Óskar Sigurður, f. 26. maí 1961,
             e) Jón Hugi, f. 21. júní 1963.
         - K.  30. des. 2005, Anna Margrét Friðbjarnardóttir, f. 15. ágúst 1921, d. 15. ágúst 2017, íþróttakennari Vestmannaeyjum, Reykjavík.
         For.: Friðbjörn Níelsson, f. 17. jan. 1887, d. 13. okt. 1952, Skósmiður, kaupmaður og bæjargjaldkeri Siglufirði og k.h. Sigríður Stefánsdóttir, f. 21. júní 1895, d. 2. júní 1987, Siglufirði, Móskógum 1901.
        
    aa   Ómar Sævar Harðarson, f. 1. júní 1955, Stjórnmálfræðingur og prentari Reykjavík.
         - K. Heiður Baldursdóttir, f. 31. maí 1958, d. 28. maí 1993, Sérkennari Reykjavík.
         For.: Baldur Sigurþór Ragnarsson, f. 25. ágúst 1930, menntaskólakennari Reykjavík og k.h. Þórey Mjallhvít Halldórsdóttir Kolbeins, f. 31. ágúst 1932, sérkennari Reykjavík.
         Börn þeirra:
             a) Brynhildur, f. 31. ágúst 1978,
             b) Þórey Mjallhvít, f. 25. ágúst 1980.
         - K. Ingibjörg Kolbeins, f. 19. okt. 1965, Hjúkrunarfræðingur Reykjavík.
         For.: Eyjólfur Halldórsson Kolbeins, f. 14. okt. 1929, d. 16. okt. 2017, Kennari Reykjavík og k.h. (skildu) Ragnhildur Lára Hannesdóttir Kolbeins, f. 5. nóv. 1926, hjúkrunarfræðingur Rvk.
        
    aaa  Brynhildur Heiðardóttir Ómarsdóttir, f. 31. ágúst 1978, Rithöfundur Reykjavík.
        
    aab  Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir, f. 25. ágúst 1980, Listamaður Reykjavík.
         ~ Finnbogi Þorkell Jónsson, f. 29. des. 1981.
         Barn þeirra:
             a) Heiður Ísafold, f. 10. nóv. 2011.
        
    aaba Heiður Ísafold Þóreyjardóttir Finnbogadóttir, f. 10. nóv. 2011, Reykjavík.
        
    ab   Harpa Sjöfn Harðardóttir, f. 16. maí 1956, Sjúkranuddari og leiðsögumaður Reykjavík.
        
    ac   Anna Sigurborg Harðardóttir, f. 16. júní 1959, Leikskólakennari Hafnarfirði.
         - M.  19. jan. 1986, Jón Gunnar Grjetarsson, f. 9. jan. 1961, d. 8. des. 2007, Sagnfræðingur og fréttamaður Hafnarfirði.
         For.: Grétar Þorsteinsson, f. 20. okt. 1940, Trésmiður Reykjavík, forseti ASÍ og Þóra Sandra Jóhannsdóttir, f. 16. des. 1941, Reykjavík.
         Börn þeirra:
             a) Andri, f. 12. okt. 1984,
             b) Sandra, f. 11. maí 1989,
             c) Tinna, f. 15. okt. 1991.
        
    aca  Andri Jónsson, f. 12. okt. 1984, Danmörku, Hafnarfirði.
         - K. Guðríður Gunnlaugsdóttir, f. 11. jan. 1985, Danmörku.
         For.: Gunnlaugur Birgir Hjartarson, f. 5. febr. 1958, verkfræðingur Noregi og k.h. Málfríður Sigurbjörg Gísladóttir, f. 4. júlí 1957, Noregi.
         Börn þeirra:
             a) Viktoría Draumey, f. 26. apríl 2009,
             b) Stefanía Lea, f. 11. okt. 2014.
        
    acaa Viktoría Draumey Andradóttir, f. 26. apríl 2009, Danmörku.
        
    acab Stefanía Lea Andradóttir, f. 11. okt. 2014, Danmörku.
        
    acb  Sandra Jónsdóttir, f. 11. maí 1989, Hafnarfirði.
         ~ Róbert Sindri Skúlason, f. 17. nóv. 1989, Flugmaður.
         Faðir: Skúli Þór Smárason, f. 30. mars 1961.
         Barn þeirra:
             a) Jón Skúli, f. 20. maí 2017.
        
    acba Jón Skúli Söndruson Róbertsson, f. 20. maí 2017.
        
    acc  Tinna Jónsdóttir, f. 15. okt. 1991, Hafnarfirði.
        
    ad   Óskar Sigurður Harðarson, f. 26. maí 1961, framkvæmdastjóri og kjötiðnaðarmaður Reykjavík.
         - K.  20. febr. 2016, Arndís Kristrún Kristleifsdóttir, f. 22. nóv. 1965, Reykjavík.
         For.: Kristleifur Kolbeinsson, f. 3. júní 1946, vélvirki Kópavogi og k.h. Stefanía Erla Gunnarsdóttir, f. 17. apríl 1945, Kópavogi.
         Börn þeirra:
             a) Stefanía Erla, f. 12. júlí 1989,
             b) Hörður Sævar, f. 6. júní 1995.
        
    ada  Stefanía Erla Óskarsdóttir, f. 12. júlí 1989, Brooklyn NY. Reykjavík. 
         - M.  19. júní 2015, Haukur Hannesson, f. 13. nóv. 1989, Brooklyn NY.
         For.: Hannes Guðmundsson, f. 21. mars 1962, Rafmagnsverkfræðingur Reykjavík og k.h. Margrét Hauksdóttir, f. 3. júní 1962, lögfræðingur Reykjavík.
         Börn þeirra:
             a) Hrafntinna Alba, f. 19. ágúst 2014,
             b) Birnir Theodór, f. 27. nóv. 2018.
        
    adaa Hrafntinna Alba Hauksdóttir, f. 19. ágúst 2014.
        
    adab Birnir Theodór Hauksson, f. 27. nóv. 2018.
        
    adb  Hörður Sævar Óskarsson, f. 6. júní 1995, Reykjavík.
        
    ae   Jón Hugi Svavar Harðarson, f. 21. júní 1963, Kaupmaður og kunnur sundmaður Akranesi.
         - K.  (skilin), Elsa Jóna Björnsdóttir, f. 28. sept. 1966, Akranesi.
         For.: Björn Jónsson, f. 5. okt. 1938, verksmiðjustjóri Akranesi og k.h. Sigríður Hulda Ketilsdóttir, f. 29. júní 1936, Akranesi.
         Börn þeirra:
             a) Dagný, f. 16. nóv. 1988,
             b) Björn, f. 7. okt. 1990,
             c) Sara Ýr, f. 10. mars 1996.
        
    aea  Dagný Jónsdóttir, f. 16. nóv. 1988, Reykjavík, laganemi Akranesi 2014.
        
    aeb  Björn Jónsson, f. 7. okt. 1990, Akranesi.
        
    aec  Sara Ýr Jónsdóttir, f. 10. mars 1996, Akranesi.
         - M. (óg.) Haukur Atli Hjálmarsson, f. 31. jan. 1993.
         Móðir: Ingibjörg Kristín Barðadóttir, f. 15. mars 1969.
         Börn þeirra:
             a) Sif, f. 1. sept. 2019,
             b) Stúlka, f. 10. nóv. 2021.
        
    aeca Sif Hauksdóttir, f. 1. sept. 2019.
        
    aecb Stúlka Hauksdóttir, f. 10. nóv. 2021.
        
    b    Erla Óskarsdóttir, f. 5. maí 1936, Hjúkrunarkona Kópavogi.
         - M.  2. ágúst 1958, Bragi Ingason, f. 30. jan. 1933, Matreiðslumaður Kópavogi.
         For.: Ingi Guðmonsson, f. 18. maí 1902, d. 21. okt. 1992, Bóndi og bátasmiður Fiskanesi við Steingrímsfjörð, Akranesi og Reykjavík og Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 23. mars 1904, d. 17. febr. 1971, Fiskanesi Ströndum.
         Börn þeirra:
             a) Anney Ósk, f. 24. febr. 1959,
             b) Ingi Rúnar, f. 20. maí 1960,
             c) Bragi Freyr, f. 16. febr. 1968,
             d) Ívar, f. 20. júní 1969.
        
    ba   Anney Ósk Bragadóttir, f. 24. febr. 1959, Garðabæ.
         - M. (óg.) (slitu samvistir), Jón Pétur Guðbjörnsson, f. 7. ágúst 1957, Reykjavík.
         For.: Oddur Guðbjörn Sumarliðason, f. 30. maí 1920, d. 13. sept. 1986, vélstjóri og símvirki Reykjavík og k.h. Valgerður Dagbjört Jónsdóttir, f. 23. mars 1923, d. 22. jan. 2001, Reykjavík.
         Börn þeirra:
             a) Óskar, f. 4. ágúst 1984,
             b) Pétur, f. 16. sept. 1985.
        
    baa  Óskar Jónsson, f. 4. ágúst 1984, Dubai Sameinuðu arabafurstadæmunum.
         - K.  26. nóv. 2015, Yvonne Della Sio Jonsson, f. (1985), Dubai, frá Auckland Nýja Sjálandi.
         Börn þeirra:
             a) Averey Erla, f. 10. sept. 2016,
             b) Sóley Regina, f. 20. des. 2018.
        
    baaa Averey Erla Óskarsdóttir, f. 10. sept. 2016, Dubai.
        
    baab Sóley Regina Óskarsdóttir, f. 20. des. 2018.
        
    bab  Pétur Jónsson, f. 16. sept. 1985, Garðabæ.
        
    bb   Ingi Rúnar Bragason, f. 20. maí 1960, kennari Reykjavík.
         - K.  29. des. 1990,  (skilin), Ása Ögmundsdóttir, f. 18. des. 1957, lögfræðingur Reykjavík.
         For.: Ögmundur Haukur Guðmundsson, f. 22. apríl 1924, d. 17. júní 1995, Tollfulltrúi Hafnarfirði og k.h. (skildu) Jóhanna Lárusdóttir Boeskov, f. 12. júlí 1932, Hjúkrunarfræðingur Garðabæ.
         Barn þeirra:
             a) Freyja, f. 31. maí 1995.
        
    bba  Freyja Ingadóttir, f. 31. maí 1995, Reykjavík.
        
    bc   Bragi Freyr Bragason, f. 16. febr. 1968, Byggingaverkfræðingur Noregi.
         - K. Linda Stefánsdóttir, f. 22. maí 1970, Noregi.
         For.: Stefán Líndal Gíslason, f. 18. mars 1950, d. 30. nóv. 1990, lögreglumaður Hafnarfirði, uppeldisforeldrar Sigurfinnur Ketilsson og Sigríður Níelsdóttir, Eystri Dyrhólum og Hulda Guðbjörg Kristinsdóttir, f. 8. jan. 1945.
         Börn þeirra:
             a) Ingi Freyr, f. 7. júní 1990,
             b) Ágúst Freyr, f. 6. sept. 2005.
        
    bca  Ingi Freyr Bragason, f. 7. júní 1990, Noregi.
         - K. (óg.) Tinna Laufdal Guðlaugsdóttir, f. 6. sept. 1989, Noregi.
         Barn þeirra:
             a) Viktoría Lind, f. 10. mars 2016.
        
    bcaa Viktoría Lind Ingadóttir, f. 10. mars 2016, Noregi.
        
    bcb  Ágúst Freyr Bragason, f. 6. sept. 2005, Noregi.
        
    bd   Ívar Bragason, f. 20. júní 1969, Framreiðslumaður Garðabæ.
         - K. Aldís Hafsteinsdóttir, f. 6. ágúst 1968, Kópavogi, fósturforeldrar Guðný Rut Jónsdóttir (1950) og Lárus Valberg (1951).
         For.: Hafsteinn Böðvarsson, f. 25. júlí 1930, d. 25. des. 1986, bryti Reykjavík og Erla Sigurðardóttir, f. 26. okt. 1942, d. 30. jan. 2012, Reykjavík.
         Börn þeirra:
             a) Garibaldi, f. 22. ágúst 1998,
             b) Rúrik Lárus, f. 8. des. 2003.
        
    bda  Garibaldi Ívarsson, f. 22. ágúst 1998, Garðabæ.
        
    bdb  Rúrik Lárus Ívarsson, f. 8. des. 2003, Garðabæ.
        
    c    Hlynur Sævar Óskarsson, f. 2. mars 1942, d. 13. mars 2017, Tónlistarkennari 28844 Kirchweyhe Þýskalandi.
         - K.  17. apríl 1965, Silke Bochert Óskarsson, f. 28. febr. 1943, tónlistarkennari Kirchweyhe Þýskalandi.
         For.: Rudi Bochert, f. (1913), Gotha-Türingen Þýskalandi og k.h. Liselotte Bochert, f. (1915), Gotha-Türingen.
         Börn þeirra:
             a) Salka Sólveig, f. 20. maí 1969,
             b) Wencke Valka, f. 29. sept. 1972.
        
    ca   Salka Sólveig Hlynsdóttir Rinke, f. 20. maí 1969 Siglufirði, flugafgreiðslumaður 288844 Kirchweyhe Þýskalandi.
         Börn hennar:
             a) Justin Sævar, f. 21. des. 1994,
             b) Ole, f. 28. júní 2001.
        
    caa  Justin Sævar Rinke, f. 21. des. 1994, Kirchweyhe.
        
    cab  Ole Rinke, f. 28. júní 2001, Kirchweyhe.
        
    cb   Wencke Valka Hlynsdóttir, f. 29. sept. 1972 Holzminden, Kennari Oldenburg/Metjendorf Þýskalandi.
         Barn hennar:
             a) Solveig, f. 20. maí 2000.
        
    cba  Solveig, f. 20. maí 2000, Oldenburg/Metjendorf.
        
    d    Hallvarður Sævar Óskarsson, f. 24. nóv. 1944, Málarameistari og hljómlistarmaður Selfossi.
         - K.  23. maí 1965, Ágústa Lúthersdóttir, f. 2. ágúst 1945, Selfossi.
         For.: Lúther Einarsson, f. 25. maí 1910, d. 2. júní 1978, Rafvirki Siglufirði og Oktavía Lovísa Friðriksdóttir, f. 21. okt. 1910, d. 7. júní 1988, Siglufirði.
         Börn þeirra:
             a) Sigurður Helgi, f. 2. jan. 1963,
             b) Íris, f. 23. nóv. 1966.
        
    da   Sigurður Helgi Hallvarðsson, f. 2. jan. 1963, d. 10. júlí 2014, Málarameistari Reykjavík.
         - Barnsmóðir Herdís Bragadóttir, f. 18. maí 1966, Danmörku.
         For.: Bragi Guðmundsson, f. 25. apríl 1942, d. 28. ágúst 2002, vélstjóri á Jóni Vídalín, frá Stykkishólmi og k.h. Sigríður Bergþóra Guðmundsdóttir, f. 27. sept. 1943, Görðum Garðabæ.
         Barn þeirra:
             a) Ágústa Marsibil, f. 26. apríl 1989.
         - K. (óg.) (slitu samvistir), Sigríður Ragna Egilson, f. 24. júlí 1968, Reykjavík.
         For.: Snorri Egilson, f. 30. okt. 1944, Garðabæ og k.h. (óg.) Þórunn Ragnarsdóttir, f. 9. júní 1945, Garðabæ.
         Börn þeirra:
             b) Snorri, f. 19. sept. 1991,
             c) Aron, f. 8. okt. 1993.
         - K. Inga María Friðriksdóttir, f. 20. ágúst 1961, Reykjavík.
         For.: Friðrik Lindberg Márusson, f. 6. mars 1931 Sólbakka Ytri-Njarðvík, d. 17. júní 2004, Rafeindavikjameistari Reykjavík og Steinþóra Ingimarsdóttir, f. 30. okt. 1937, Reykjavík.
         Barn þeirra:
             d) Hallvarður Óskar, f. 13. jan. 1999.
        
    daa  Ágústa Marsibil Sigurðardóttir, f. 26. apríl 1989, Danmörku.
        
    dab  Snorri Sigurðarson, f. 19. sept. 1991, Reykjavík.
         ~ Hildur Karen Jóhannsdóttir, f. 21. ágúst 1995.
         Móðir: Þórdís Dagbjört Gunnarsdóttir, f. 1. apríl 1965.
         Barn þeirra:
             a) Emilía Dagbjört, f. 7. apríl 2021.
        
    daba Emilía Dagbjört Snorradóttir, f. 7. apríl 2021.
        
    dac  Aron Sigurðarson, f. 8. okt. 1993, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður með Tromsø.
        
    dad  Hallvarður Óskar Sigurðarson, f. 13. jan. 1999, Reykjavík.
        
    db   Íris Hallvarðsdóttir, f. 23. nóv. 1966, Kennari Reykjavík.
         - M.  25. apríl 1996,  (skilin), Hlynur Sigursveinsson, f. 16. apríl 1968, Hagfræðingur Reykjavík.
         For.: Sigursveinn Friðriksson, f. 18. júní 1940 Völlum Svarfaðardal, Starfsmaður Laxeldis Kollafirði og k.h. (skildu) Margrét Vallý Jóhannsdóttir, f. 21. sept. 1948, d. 1. maí 2006, leikskólakennari Reykjavík.
         Barn þeirra:
             a) Hinrik Tumi, f. 20. sept. 1992.
         - Barnsfaðir Rögnvaldur Birgir Johnsen, f. 31. maí 1975, Sölumaður Reykjavík.
         For.: Gunnar Valdimar Johnsen, f. 23. okt. 1949, eðlisverkfræðingur Garðabæ og Bergþóra Sigmundsdóttir, f. 22. maí 1950, þjóðfélagsfræðingur Garðabæ.
         Barn þeirra:
             b) Gabríel Rómeó, f. 4. sept. 2003.
         - M. Guðjón Valgeir Ragnarsson, f. 30. mars 1964.
         Faðir: Ragnar Magnússon, f. 19. júní 1935.
        
    dba  Hinrik Tumi Hlynsson, f. 20. sept. 1992, Reykjavík.
        
    dbb  Gabríel Rómeó Rögnvaldsson Johnsen, f. 4. sept. 2003, Reykjavík.
        
    e    Hólmgeir Sævar Óskarsson, f. 26. des. 1945, d. 18. apríl 2016, Trésmiður Selfossi.
         - K.  25. des. 1968, Ólína Björnsdóttir, f. 11. ágúst 1946, Selfossi.
         For.: Björn Stefán Ólafsson, f. 10. júlí 1917, d. 4. nóv. 1965, Bifreiðastjóri Siglufirði og Hólmfríður Steinþórsdóttir, f. 25. júlí 1917, Siglufirði.
         Börn þeirra:
             a) Heimir, f. 7. júlí 1964,
             b) Hilmar, f. 18. júní 1967,
             c) Stefán Þór, f. 3. nóv. 1971.
         - Barnsmóðir Sigríður Benediktsdóttir Blöndal, f. 24. apríl 1948, Guðrúnarstöðum 1957.
         For.: Benedikt Björnsson Blöndal, f. 23. maí 1924, d. 8. nóv. 1991, versl.maður Rvík og Keflavík og k.h. (skildu) Sigþrúður Guðmundsdóttir, f. 18. ágúst 1926, d. 5. okt. 2010, Reykjavík.
         Barn þeirra:
             d) Hulda Birna, f. 29. maí 1966.
        
    ea   Heimir Hólmgeirsson, f. 7. júlí 1964, Ahle Videbæk Danmörku, auglýsingateiknari Selfossi.
         - K. (óg.) (slitu samvistir), Jóna Guðný Jónsdóttir, f. 25. sept. 1966, Selfossi.
         For.: Guðmundur Jón Skarphéðinsson, f. 7. ágúst 1948, Siglufirði og k.h. Elín Anna Gestsdóttir, f. 27. sept. 1946, Siglufirði.
         Börn þeirra:
             a) Salka, f. 2. júní 1998,
             b) Jóel, f. 5. júní 2000.
         - K. (óg.) Louise Aagaard, f. (1970), Haunstrup Ringköbing Danmark.
         Barn þeirra:
             c) Andreas, f. 2. apríl 2011.
        
    eaa  Salka Heimisdóttir, f. 2. júní 1998, Selfossi.
        
    eab  Jóel Heimisson, f. 5. júní 2000, Selfossi.
        
    eac  Andreas Heimisson, f. 2. apríl 2011, Videbæk.
        
    eb   Hilmar Hólmgeirsson, f. 18. júní 1967, Framkvæmdastjóri Reykjavík. 
         - Barnsmóðir Súsanna Kristín Heiðarsdóttir Glands, f. 11. febr. 1968, Reykjavík.
         For.: Heiðar Magnús Vilhjálmsson, f. 16. jan. 1948, sölumaður Rvk og k.h. Sigríður Pétursdóttir, f. 2. sept. 1947, Reykjavík.
         Barn þeirra:
             a) Pétur Andri, f. 21. sept. 1992.
         - Barnsmóðir Dröfn Árnadóttir, f. 5. ágúst 1977, Akureyri.
         For.: Árni Steinsson, f. 16. febr. 1952, framkvæmdastjór Akureyri og k.h. Kristrún Gísladóttir, f. 13. ágúst 1953, Akureyri.
         Barn þeirra:
             b) Aron Örn, f. 27. des. 1993.
         - K.  18. sept. 2010, Elín Magnúsdóttir, f. 20. sept. 1972, Reykjavík.
         For.: Magnús Welding Jónsson, f. 28. jan. 1950, d. 31. jan. 2013, Reykjavík (sjá "Stella í orlofi" og Kristín Ingibjörg Hinriksdóttir, f. 24. mars 1951, snyrtifræðingur Reykjavík.
         Barn þeirra:
             c) Ólína Sif, f. 15. nóv. 2001.
        
    eba  Pétur Andri Hilmarsson, f. 21. sept. 1992, Reykjavík.
        
    ebb  Aron Örn Drafnarson, f. 27. des. 1993.
        
    ebc  Ólína Sif Hilmarsdóttir, f. 15. nóv. 2001, Reykjavík.
        
    ec   Stefán Þór Hólmgeirsson, f. 3. nóv. 1971, Selfossi.
         - K. (óg.) Linda Björk Sigmundsdóttir, f. 12. apríl 1980, Selfossi.
         For.: Sigmundur Stefánsson, f. 2. febr. 1953, deildarstjóri Selfossi og k.h. Ingileif Auðunsdóttir, f. 19. des. 1954, sjúkraliði Selfossi.
         Börn þeirra:
             a) Eva, f. 19. des. 2005,
             b) Freyja, f. 22. des. 2007.
         - K. (óg.) Karólína Helga Eggertsdóttir, f. 4. maí 1981.
         For.: Eggert Smári Eggertsson, f. 24. apríl 1958, og Katharina Sibylla Snorradóttir, f. 15. apríl 1959.
        
    eca  Eva Stefánsdóttir, f. 19. des. 2005, Selfossi.
        
    ecb  Freyja Stefánsdóttir, f. 22. des. 2007, Selfossi.
        
    ed   Hulda Birna Blöndal, f. 29. maí 1966, Kópavogi.
         - M.  (skilin), Hafþór Þórðarson, f. 21. apríl 1961, Keflavík.
         For.: Þórður Guðmundsson, f. 28. jan. 1934, Gerðum og Helga Jóhanna Þorsteinsdóttir, f. 14. febr. 1942, d. 7. okt. 2003, Garði.
         Börn þeirra:
             a) Grétar Þór, f. 18. sept. 1984,
             b) Gunnhildur, f. 12. mars 1989,
             c) Birkir, f. 13. okt. 1994.
        
    eda  Grétar Þór Hafþórsson, f. 18. sept. 1984.
        
    edb  Gunnhildur Hafþórsdóttir Blöndal, f. 12. mars 1989, Reykjavík.
         - Barnsfaðir Björgvin Viktor Þórðarson, f. 27. okt. 1985, Reykjavík, kjörfaðir Þór Kristjánsson 22.5.1965.
         For.: Þórður Jónsson, f. 5. júlí 1964, Þýskalandi og Magný Ósk Arnórsdóttir, f. 26. okt. 1968, Hafnarfirði, kjörfaðir Arnór Pétursson 14.11.1949.
         Barn þeirra:
             a) Tanja Birna, f. 29. jan. 2009.
         - M.  10. ágúst 2019, Finnur Hrafnsson, f. 8. nóv. 1982, Matreiðslumaður Blönduósi.
         Börn þeirra:
             b) Alda Kristín, f. 28. sept. 2017,
             c) Hrafney, f. 27. ágúst 2020.
        
    edba Tanja Birna Björgvinsdóttir Blöndal, f. 29. jan. 2009, Reykjavík.
        
    edbb Alda Kristín Finnsdóttir Blöndal, f. 28. sept. 2017.
        
    edbc Hrafney Finnsdóttir Blöndal, f. 27. ágúst 2020, Reykjavík.
        
    edc  Birkir Hafþórsson, f. 13. okt. 1994.
         - Barnsmóðir Sólveig Sigrún Oddsdóttir, f. 10. maí 1996.
         For.: Oddur Jónsson, f. 10. jan. 1970, og Berglind Fanney Guðlaugsdóttir, f. 16. júní 1973.
         Barn þeirra:
             a) Þórður Máni, f. 3. apríl 2021.
        
    edca Þórður Máni Birkisson, f. 3. apríl 2021.
        
    f    Sigurður Helgi Sævar Óskarsson, f. 27. febr. 1950, d. 18. febr. 1961, Siglufirði.

 



Enter supporting content here

Samantekt og skráning: © Guðmundur Paul Scheel Jónsson

                                vardberg[att]simnet.is